Á leið á klósettið? Ferðamenn nýta sér Akureyrarkirkju sem almenningssalerni. Mynd/Þröstur Ernir
Ekkert almenningssalerni er í miðbæ Akureyrar og hefur ferðafólk kosið í stórum mæli að nýta sér salernisaðstöðuna í Akureyrarkirkju.Rafn Sveinsson, formaður Akureyrarsóknar,segir ástandið vart boðlegtog þörf sé á almenningsklósetti ímiðbænum. Mér finnst eðlileg þjónustahjá bænum að bjóða upp á almenningssalerni.Fólk er velkomið íkirkjuna og nýta sér aðstöðuna semþar er, en þetta var ekki hugsað sem almenningssalerni," segir Rafn.
Hann segir umferðina um salerniðá sumrin ekki eðlilega. Bærinn á að sjá sóma sinn í því að bjóða fólki sem hingað kemur upp á almenningsklósett í miðbænum, segir Rafn.
„Staðan er góð hvað varðar framboð lóða á Akureyri og við erum þegar farin að huga að frekari úthlutunum, bæði í Móahverfi og á þeim lóðum sem eftir eru í Holtahverfi. Um 1.200 íbúðir eru nú í byggingu eða á lóðum sem nýlega hefur verið úthlutað, auk um 200 íbúða sem eru í undirbúningi á eldri lóðum, þótt óljóst sé hvenær framkvæmdir hefjast þar,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir formaður skipulagsráðs Akureyrarbæjar.
Bleiki dagurinn er í dag en hann er til að sýna samstöðu með krabbameinssjúkum og vekja athygli á baráttunni gegn krabbameinum. Dagurinn er hápunktur árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands, Bleiku slaufunnar, sem stendur yfir í október.
Merkum áfanga var náð á dögunum þegar starfsfólk Hölds gróðursetti tré númer 40.000 í árlegri gróðursetningarferð félagsins. Gróðursetning hefur verið fastur liður í starfsemi Hölds í þrjá áratugi og hefur starfsfólk víða um land tekið þátt í verkefninu.
Á aukaaðalfundi Norðurorku sem fram fór í dag var stigið mikilvægt skref í því hvernig Akureyrarbær hyggst sinna hlutverki sínu sem stærsti hluthafi fyrirtækisins. Í fyrsta sinn voru óháðir stjórnarmenn tilnefndir til setu í stjórn félagsins.
Kaffistofan hefur verið valin sigurvegari á Íslandi í European Coffee Trip Awards 2026! Það er okkur mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu, ekki síst þar sem hún byggir á atkvæðum kaffiaðdáenda.
Gjaldskrár Norðurorku munu ekki hækka umfram 2,5% um næstu áramót eftir ákvörðun eigenda fyrirtækisins á aukaaðalfundi á þriðjudagsmorgun. Á þeim fundi var tillögum meirihluta stjórnar hafnað, en þær gerðu ráð fyrir á bilinu 2,5 og upp í 7% hækkun á gjaldskrá veitnanna um næstu áramót. Norðurorka rekur hitaveitu, rafveitu, vatnsveitu ogfráveitu.
Vídeódanshátíðin Boreal Screendance Festival 2026 hefst á föstudaginn í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri. Boreal hefur verið haldin á mörkum hausts og vetrar frá árinu 2020, fyrst í Mjólkurbúðinni en nú leggur hátíðin undir sig Listagilið rúmar þrjár vikur í október og nóvember. Viðburðir Boreal að þessu sinni fara fram í Listasafninu á Akureyri, Mjólkurbúðinni, Deiglunni og Kaktus.
Færeyska tónlistarkonan Guðrið Hansdóttir er hér á landi í október og heldur níu tónleika í hringferð um landið dagana 20.–29. október. Tilefnið er útgáfa sjöundu hljóðversplötu hennar, Sýrublað, sem kom út í vor og hlaut góðar viðtökur. Platan er unnin af Høgna Lisberg.
Viðbygging við leikskólann Krummafót á Grenivík eru langt komin. Hún er Hún er nálægt 150 fermetrum að stærð og mun hýsa alla starfsmannaaðstöðu, stoðþjónustu, fundar- og samkomuaðstöðu.