Leikskólakennarar semja

Frá undirritun samningsins í kvöld.
Frá undirritun samningsins í kvöld.
Skrifað var undir nýjan kjarasamning Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga upp úr kl. átta í kvöld, eftir stíf fundarhöld síðustu daga. Boðuðu verkfalli fimmtudaginn 19. júní hefur því verið aflýst. Kjarasamningurinn er til eins árs, gildir nánar tiltekið frá 1. júní 2014 til 31. maí 2015. Hann verður kynntur félagsmönnum FL á næstu dögum.
 

Nýjast