Leiknir hafði betur gegn KA

Leiknir frá Reykjavík kom sér úr fallsæti í 1. deild karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á KA á Akureyrarvelli í kvöld. Leiknir komst í 2-0 með mörkum frá þeim Damir Muminovic (16. mín.) og Ólafi H. Kristjánssyni (49. mín.) en varamaðurinn Gunnar Örvar Stefánsson minnkaði muninn fyrir KA átta mínútum fyrir leikslok. Lengra komust KA-menn ekki og hefur liðið sextán stig í sjötta sæti deildarinnar en Leiknir hefur þrettán stig í níunda sæti.

Nýjast