Leiklistarskóli LA er einstakur á landsvísu

Vorönn Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar hófst í vikunni. Skólinn er fyrir krakka á aldrinum 9-15 ára og hefur verið feiki vinsæll alveg frá stofnun skólans 2009 og eru nú um 60 börn skráð í skólann.

Markmið skólans er að gefa ungu fólki tækifæri til að þroska og þróa aðferðir til að beisla sköpunarkraft sinn og beina honum í listrænan farveg. Áherslan er á leiklist, söng og dans.

Skólinn er einstakur á landsvísu þar sem hann er eini leiklistarskólinn fyrir börn sem rekinn er af atvinnuleikhúsi. Stjórnendur nota þessa tengingu við leikhúsið í uppbyggingu námsins, meðal annars með því að nemendur fá að kynnast þeim listamönnum sem eru starfandi við leikhúsið og fá innsýn í mismunandi aðferðir og tækni. Leikarar LA leiða hluta kennslunnar auk þess sem eldri hóparnir komast í kynni við gestalistamenn á við Sticks&Stones og Kviss Búmm Bang. Yfirkennari er Þórhildur Örvarsdóttir söngkona.

Kennt er í Rýminu, sem í ár er helgað frumsköpun í sviðslistum. Rýmið er eitt af betri leikhússölum landsins sem tilheyra “Black-box” gerðinni. Það er einstakt að því leyti að hægt er að breyta salnum án mikillar fyrirhafnar allt eftir eðli sýninga. Slík rými eru einstaklega hentug til leiklistarkennslu þar sem þau halda vel utan um hópa sem eru að vinna að ýmis konar framsetningu leikins efnis, segir í tilkynningu.

 

Nýjast