Leiklistarsambandið hefur áhyggjur af Leikfélagi Akureyrar

Samkomuhúsið á Akureyri
Samkomuhúsið á Akureyri

Leiklistarsamband Íslands lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu og framtíð atvinnuleiklistar á Akureyri og sendi í dag frá sér yfirlýsingu um málið.

„Undanfarin ár hefur Leikfélag Akureyrar glímt við uppsafnaðan fjárhagsvanda, en á sama tíma haldið úti metnaðarfullri starfsemi. Lán sem félagið tók hjá Akureyrarbæ fyrir þremur árum til að forða gjaldþroti hefur verið greitt niður um 44 milljónir og stendur í tíu milljónum í lok leikárs.

Á sama tíma hefur samkeppni á sviði menningar og afþreyingar stóraukist og leikfélagið ekki lengur eitt um framboð á atvinnuleiksýningum á Akureyri líkt og á árum áður auk þess sem opinber framlög til framleiðslu hafa verið óbreytt að krónutölu síðan 2007. Þrátt fyrir þetta jókst sjálfsaflafé um 50% frá síðasta ári og sýningar og fræðslustarf, hafa gengið vel.

Eins og sakir standa lítur hins vegar út fyrir að starfsemi Leikfélags Akureyrar leggist niður. Gríðarleg þekking, listræn og tæknileg, hverfur eða nýtist ekki eða illa í samfélaginu. Öflugt fræðslustarf leggst af, sem og aðkoma vinnustofugesta og annarra listamanna sem leggja félaginu lið. Þar með væri stórt skarð höggvið í atvinnuleikhús utan höfuðborgarsvæðisins.

Það er álit fulltrúaráðs Leiklistarsambands Íslands að hér sé um að ræða. Óásættanlega afturför fyrir menningarlífið í landinu og hvetur bæjarráð Akureyrar til að standa vörð um atvinnuleikhús á Akureyri,“ segir í yfirlýsingu Leiklistarsambands Íslands.

Nýjast