Leikfangasýningin í Friðbjarnarhúsi

Á morguun, laugardag, hefst sumaropnun  á Leikfangasýningunni í Friðbjarnarhúsi, Aðalstræti 46 á Akureyri.

Sýning þessi samanstendur af hundruðum leikfanga sem eru öll frá liðinni öld.  Í sumar eru 3 ár síðan Leikfangasýningin opnaði og hafa verið ýmsar sérsýningar t.d.  sýning á tré-leikföngum sem framleidd voru hjá Leikfangagerð Akureyrar og Leifsleikföngum á árunum 1931 – 1960.

Það verður opið alla daga í sumar frá kl. 13 – 17 auk þess sem hægt er að panta skoðun utan opnunartíma.

Nýjast