Leiðsögn um sumarsýningar

Sjónlistamiðstöðin býður upp á leiðsögn á morgun, fimmtudag, kl. 12:00 um sumarsýningu Listasafnsins, Íslensk samtíðarportrett – mannlýsingar á 21. öld sem var opnuð síðastliðinn laugardag. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, leiðir gesti um sýninguna og fræðir þá um verkin og tilurð þeirra.  Viku síðar eða fimmtudaginn 19. júní verður leiðsögn um sumarsýningu Ketilhússins, Gísli B. – Fimm áratugir í grafískri hönnun.

Um vikulegar leiðsagnir er að ræða sem verða til skiptis á hvorum stað á hverjum fimmtudegi kl. 12 og er aðgangur ókeypis.

Nýjast