Starfsfólk Tónlistarskólans á Akureyri hefur skriflega farið fram á að fundin verði lausn á of þurru lofti í húsnæði skólans í Hofi. Loftræsting hússins er ekki rakastýrð og hefur þurft að grípa til þess ráðs að kauparakatæki í nokkrar stofur skólans, þar sem loftið er almennt of þurrt.
Almennt er talað um að æskilegur raki fari ekki undir 30%. Verkfræðistofa Norðurlands hefur nú mælt rakastigið í húsnæði Tónlistarskólans á Akureyri og sendi stofan Akureyrarbæ í kjölfarið minnisblað um helstu niðurstöður. Samkvæmt þeim var rakastigið um 12% og hækkaði í 20%, væntanlega af breyttum aðstæðum útilofts, segir í minnisblaðinu.
Til að komast hjá áhrifum sem sveiflur á rakastigi hafa á hljóðfæri, búnað og önnur áhrif lágs rakastigs, er eina leiðin að bæta raka í loftið og æskilegast er að nota til þess gufurakatæki sem ættu ekki að leiða til mengunar frá örverugróðri. Samtímis rakabætingu er ráðlegt að halda loftun viðkomandi rýma í lágmarki og á það sérstaklega við um kaldasta tíma ársins, segir jafnframt í minnisblaði Verkfræðistofu Norðurlands.