Það er góð stemmning í liðinu og virkilega skemmtileg og spennandi helgi framundan, segir Bjarni Fritzson annar þjálfari Akureyrar. Fjögur lið munu berjast um bikarmeistaratitil karla í handknattleik um helgina. Í undanúrslitum í Laugardalshöllinni í kvöld mætast Akureyri og Stjarnan annars vegar og hins vegar ÍR og Selfoss. Fyrri leikurinn hefst kl. 17:15 en sá síðari kl. 19:45 og er það leikur Akureyrar og Stjörnunnar.
Við verðum að teljast sigurstranglegri þar sem við erum einni deild fyrir ofan. En Stjarnan er með flott lið og ég reikna því með hörkuleik. Við munum gefa allt í þetta verkefni, segir Bjarni.
Úrslitaleikurinn fer fram í Laugardalshöllinni á sunnudaginn kemur kl. 13:30. Akureyri hefur einu sinni leikið til úrslita í bikarkeppninni en liðið tapaði fyrir Val í úrslitum fyrir tveimur árum, 24-26.
throstur@vikudagur.is