Bæjarráð Akureyrar ákvað í dag laun í vinnuskóla bæjarins. Launin hækka um 3,74% frá fyrra ári:
14 ára kr. 382 á klst.
15 ára kr. 436 á klst.
16 ára kr. 573 á klst.
10,17% orlof er greitt til viðbótar við tímakaup.
Samþykkt var að hækka heildarfjölda vinnustunda í boði hjá hverjum árgangi sem hér segir:
Tímar hjá 14 og 15 ára verða alls 105, en voru áður 90 hjá hvorum árgangi. Tímar hjá 16 ára verða alls 180 en voru á sl. ári alls 144.
Bæjarráð mun endurskoða launin þegar kjarasamningur Sambands íslenskra sveitarfélaga við Einingu-Iðju liggur fyrir.