Jóhannes Gunnar Bjarnason fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins segir að pólitískum ferli sínum sé lokið. Hann sóttist eftir fjórða til fimmta sæti á framboðslista flokksins í prófkjöri flokksins sem haldið var í gær. Hann náði ekki kjöri. Jóhannes Gunnar skrifar um niðurstöðu prófkjörsins á Facebook-síðu sinni.
Lauk þar með pólitískum ferli mínum og vert að senda sigurvegurum prófkjörsins hamingjukveðjur. Þetta er glæsilegur hópur fólks og gott að ungt fólk hafi áhuga á bæjarmálum. Mínu framlagi til stjórnunar Akureyrarbæjar er því lokið og vil ég þakka fjölmörgum samstarfsmönnum samvinnuna sem oftast nær hefur verið afar ánægjuleg, skrifar Jóhannes Gunnar Bjarnason.Hann sat í bæjarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn í átta ár.