Þeir Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs og Janez Vrenko leikmaður KA, fengu báðir eins leiks bann þegar Aga- og Úrskurðarnefnd KSÍ kom saman í gær.
Lárus Orri mun því ekki stýra liði Þórs sem tekur á móti Fjarðabyggð nk. föstudag á Þórsvellinum og Vrenko mun sömuleiðis missa af útileik KA gegn ÍR þann sama dag.
Þá fékk Hlynur Svan Eiríksson, leikmaður í Magna í 2. deild, eins leiks bann.