Stjórn Landeigenda Reykjahlíðar ehf. í Mývatnssveit hefur ákveðið að loka alveg svæðinu við Leirhnjúk, norðvestur af Kröflu, fyrir ferðamönnum frá og með morgundeginum, 17. júní, um óákveðinn tíma. Áberandi skilti um lokun verða sett upp svo ekkert fari á milli mála.
Til þessa ráðs er gripið annars vegar til að verja landið frekari spjöllum en orðin eru vegna ágangs á tímum þegar landið er viðkvæmt og göngustígar og göngupallar eru afar illa farnir eftir vetraráhlaup og snjóþyngsli en hins vegar er þetta gert í þágu öryggis ferðafólks.
Gönguleiðir í kringum Víti eru sömuleiðis stórhættulegar ferðafólki og óhjákvæmilegt að loka svæðinu af öryggisástæðum.
Þarna hefur þegar orðið mikið tjón og ætla má að það muni kosta allt að 2,5 milljónum króna að bæta þar úr svo stígar og pallar komist í samt lag á ný. Mikil óvissa ríkir um hverjir treysta sér til eða telja sig eiga að borga endurbæturnar og tryggja þannig öryggi ferðamanna. Hér er því nærtækt dæmi nauðsyn þess að afla nauðsynlegra tekna, með því að gestir greiði fyrir að skoða náttúruperlurnar, til að gera svæðið þannig að það standist kröfur um landvernd og öryggi. Því miður er lokun eina leiðin í stöðunni.
Næstu daga verður svæðið við hveri austan Námafjalls tekið út og ákveðið í framhaldinu hvort loka eigi þar líka í þágu öryggis ferðamanna.
Hér er úr vöndu að ráða. Enn og aftur kalla landeigendur eftir tillögum aðila í ferðaþjónustu, stjórnvalda og umhverfissamtaka um hvað sé til ráða til frambúðar. Náttúran líður fyrir óbreytt ástand og ekki hætta ferðamenn að heimsækja Mývatnssveit í náinni framtíð!
Það verður að horfa á allar hliðar stóraukins ferðamannastraums til Íslands og gera tilheyrandi ráðstafanir svo landið þoli áganginn. Landeigendur Reykjahlíðar stefna að því að byrja að innheimta náttúruverndargjald af ferðamönnum á árinu 2014. Það er eina leiðin út úr þessum vandanum, segir í tilkynningu frá landeigendum.