Land í eigu þjóðkirkjunnar framleigt án vitundar kirkjunnar

Séð heim að Möðruvöllum/mynd Karl Eskil
Séð heim að Möðruvöllum/mynd Karl Eskil

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur nýverið framleigt bændum í Hörgárdal ræktarland á Möðruvöllum I, sem er í eigu þjóðkirkjunnar og gildir samningurinn til eins árs. Landbúnaðarháskólinn hefur undanfarin ár leigt umrætt ræktarland og rennur gildandi samningur stofnunarinnar við þjóðkirkjuna út í sumar.

Bændur sem Vikudagur hefur rætt við vegna þessa máls eru afar ósáttir, þeir telja sig hafa fengið loforð frá skólanum um að fá leigðar spildur.

Alvarlegt mál

„Ég hef kallað eftir þessum samningum, þeir eru gerðir án vitundar og samþykkis okkar,“ segir Kristín Björg Albertsdóttir lögfræðingur fasteignasviðs þjóðkirkjunnar.

„Þetta er alvarlegt mál í mínum huga og um að ræða vinnubrögð sem ekki er hægt að líða og verður skoðað,“ segir Kristín Björg.

Óánægðir bændur í Hörgárdal hafa fundað um málið undanfarna daga. Þeir hafa ekki ákveðið næstu skref, en eru sammála um að skólinn hafi svikið gefin loforð og auk þess séu umræddir samningar líklega ólöglegir.

 

Nánar um þetta mál í prentútgáfu Vikudags

Nýjast