Bið eftir tíma hjá heimilislækni á Akureyri mun lengjast í vor vegna frekari læknaskorts. Biðtíminn er að jafnaði ein og hálf vika en getur orðið 3-4 vikur hjá einstaka lækni. Þetta segir Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Nokkrir læknar verða fjarverandi í mars og það hefur ekki tekist að ráða í þær stöður, segir Margrét. Í mars verða fastir heimilislæknar tíu en fækkar um einn í apríl og í maí verða því níu þegar verst lætur. Læknar þyrftu hins vegar að vera fjórtán til að anna eftirspurn að sögn Margrétar. Í einhverjum tilvikum er um námsleyfi að ræða hjá læknum. Það verður eitthvað um afleysingar en það er viðbúið að ástandið þyngist í vor, en staðan batni eitthvað í sumar.
throstur@vikudagur.is