Læknaráð FSA hefur áhyggjur af sálfræðiþjónustu og geðlækningum ungs fólks

Læknaráð Sjúkrahússins á Akureyri lýsir yfir áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp varðandi barna-og unglingageðlækningar og sálfræðiþjónustu fyrir ungmenni á þjónustusvæði sjúkrahússins. Yfirlæknir og sálfræðingur hafa sagt störfum sínum lausum, m.a. vegna óánægju með nýtt skipurit. Þetta skapar mikla óvissu um áframhaldandi þjónustu á þessu sviði, en það er alvarlegt mál ef svo viðamikil og mikilvæg starfsemi leggst af í þessum landshluta.


Þjónustusvæði Sjúkrahússins á Akureyri fyrir barna-og unglingageðlækningar og sálfræðiþjónustu ungmenna er stórt og nær frá Hrútafirði í vestri til Hornafjarðar í austri. Sjúkrahúsið veitir á ári hverju hundruðum barna og ungmenna og fjölskyldum þeirra þjónustu á þessu sviði og það hefur komið fram að Barna-og unglingageðdeild Landspítalans í Reykjavík getur ekki bætt þessari þjónustu á sig, enda eru langir biðlistar þar fyrir.


Læknaráð skorar á framkvæmdastjórn og viðkomandi sérfræðinga að leita sátta í þessu máli þannig að þessi nauðsynlega þjónusta leggist ekki af heldur verði áfram veitt á Sjúkrahúsinu á Akureyri, segir í ályktun.

Nýjast