Læknadóp eykst á götum Akureyrar

Lyfseðilsskyld lyf á borð við rítalín ganga kaupum og sölum á Akureyri og hefur neyslan á svokölluðu læknadópi færst í vöxt undanfarin ár. Þetta segir Gunnar Jóhannsson lögreglufulltrúi á Akureyri.

„Það er staðreynd að talsverður fjöldi fólks sem fær þetta lyf upp á skrifað hjá lækni er ekki að nota það sjálft. Það ýmist selur það eða skiptir því út fyrir fíkniefni. Það virðist vera nægur markaður fyrir læknislyf í bænum og sérstaklega hvað varðar rítalín,“ segir Gunnar.

Rítalín er örvandi efni og er m.a. notað af fólki sem þjáist af ofvirkni, athyglisbresti, hjartsláttatruflunum og drómasýki. Þórir V. Þórisson, yfirlæknir á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, segir lyfseðlaútskriftir á rítalíni og skyldum lyfjum vera í ákveðnum farvegi og það sé ekki auðvelt að nálgast þessi lyf.

Nánar um þetta í prentútgáfu Vikudags

throstur@vikudagur.is

Nýjast