LA með almennan félagsfund og málþing

Leikfélag Akureyrar stendur fyrir almennum félagsfundi og málþingi fimmtudaginn 21. mars. Á félagsfundinum, sem hefst kl. 19:30,  verður leikárið 2013-14 kynnt félagsmönnum og að því loknu verður málþing, kl. 20:30,  með yfirskriftinni "Hver er kaktusinn í okkar samfélagi". Þar munu lögfræðingarnir Katrín Oddsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ásamt Evu Maríu Ingvadóttur ræða mannréttindamál út frá leiksýningunni Kaktusinn sem sýndur er um þessar mundir hjá LA. Félagsfundurinn er opinn öllum félagsmönnum en hægt er að skrá sig í félagið á netfanginu midasala@leikfelag.is. Málþingið er ókeypis og öllum opið. Báðir viðburðirnir eru haldnir í Samkomuhúsinu.

Nýjast