L-listinn fengi aðeins einn bæjarfulltrúa

Frá Akureyri/mynd karl eskil
Frá Akureyri/mynd karl eskil

Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið sýnir að Listi fólksins á Akureyri gyldi afhroð og tapaði fimm af sex bæjarfulltrúum sínum, ef yrði kosið nú.

Fylgi L-listans hrapar úm 45 % í kosningunum 201ö í 13,1 %, samkvæmt könnuninni.

Sjálfstæðisflokkurinn er nú stærsti flokkurinn á Akureyri með 23,2% fylgi og fengi þrjá bæjarfulltrúa. Vinstri græn eru með 16,7% fylgi og fá tvo fulltrúa kjörna. Fylgi Bjartrar framtíðar er 16,6% sem gefur tvo fulltrúa. Framsóknarflokkurinn nýtur stuðnings 14,7% kjósenda og fengi einnig tvo bæjarfulltrúa. Samfylkingin tapar fylgi, fær 8,7% og einn fulltrúa. Bæjarlistinn, sem nú á einn fulltrúa, fengi engan mann kjörinn

Frétt mbl um könnunina

Nýjast