Kviss búmm bang og LA bjóða í fermingarveislu!

Veislan verður í Hlíðarbæ
Veislan verður í Hlíðarbæ

Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang í samvinnu við Leikfélag Akureyrar frumsýnir á fimmtudagskvöld sýninguna Lög unga fólksins í Hlíðarbæ í Hörgársveit. Boðið er í fermingarveislu sem tekur óvænta stefnu. Verkið er þátttakendaverk í anda flokksins þar sem allir taka þátt á sínum forsendum og enginn er skilinn útundan.

Kviss búmm bang eru orðnar þekktar út fyrir landsteinana fyrir framandgerð verk sín og vinnubrögð. Þær hafa sýnt á stórhátíðum á borð við Listahátíðina í Vínarborg og Baltic Circle í Helsinki auk þess að koma fram á New Baltic Dance í Vilníus og Bonus Festival í Héde í Frakklandi. Nýlega voru þær valdar til að taka þátt í verkefninu Global City.Local City sem hátíðir á borð við Spielart í Munchen og LIFT í London standa að. Þetta er þriggja ára verkefni þar sem listamönnum er flogið um heiminn til að viða að sér efni til listsköpunar, tengjast öðrum listamönnum, framleiðendum og hátíðum. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér: http://www.theatrefit.org/lab.php

Einungis sex sýningar verða á Lögum unga fólksins í Hlíðarbæ og er þegar uppselt á fjórar.

Nýjast