09. febrúar, 2013 - 12:48
Á myndinni eru Hulda Ringsted, Birna Baldursdóttir og Pálmi Óskarsson.
Kvenfélagið Hlíf á Akureyri hefur gefið slysa- og bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri gjafabréf að andvirði 400.000 krónur. Styrkurinn var afhentur á 106 ára afmælisdegi félagsins þann 4. febrúar síðastliðinn. Peningarnir verða notaðir til að kaupa búnað sem nýtist við móttöku ungra, bráðveikra eða slasaðra barna. Það var formaður félagsins Birna Baldursdóttir sem færði deildinni gjöfina ásamt tólf öðrum félagskonum og var meðal þeirra elsta konan í félaginu sem verðu níræð næsta vetur.
Þau Pálmi Óskarson læknir, Hulda Ringsted deildarstjóri á Slysadeild, Hildigunnur Svavarsdóttir forstöðumaður hjúkrunarsviðs og Gróa B. Jóhannesdóttir forstöðumaður barnasviðs tóku á móti gjöfinni fyrir hönd deildarinnar.