Kveikt á friðarljósum á Akureyri á morgun

Útför Þorvaldar Þorsteinssonar myndlistamanns og rithöfundar fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun. Félagar í Myndlistarfélaginu á Akureyri ætla að votta Þorvaldi virðingu sína með því að kveikja á friðarljósum og leggja á grasblettinn fyrir framan Myndlistarfélagið í Listagilinu,Kaupvangsstræti 10. Félagið hvetur alla listamenn á Akureyri og aðra bæjarbúa til að fjölmenna á morgun, föstudag með friðarljós kl.18.15  fyrir framan Sal Myndlistarfélagsins.

Nýjast