Kveður Neytendasamtökin með söknuði

Brynhildur Pétursdóttir/mynd Þröstur Ernir
Brynhildur Pétursdóttir/mynd Þröstur Ernir

„Þetta leggst mjög vel í mig og verður krefjandi verkefni,“ segir Brynhildur Pétursdóttir, ein af 27 nýliðum sem taka sæti á nýju Alþingi. Brynhildur er verðandi þingmaður Bjartrar framtíðar í Norðausturkjördæmi  og verður með annan fótinn fyrir sunnan næstu fjögur árin í það minnsta.

„Ég ætla ekki að flytja suður. Mér finnst mjög mikilvægt að þingmenn á landsbyggðinni hafi þann kost að búa í sínu kjördæmi. Það er óþarfi að flytjast búferlum á tækniöld en vissulega kemur maður til með að eyða miklum tíma fyrir sunnan.

 Rödd neytenda

Brynhildur hefur starfað hjá Neytendasamtökunum í tíu ár og segist ekki hafa stefnt á frama í pólitík. Ég kveð Neytendasamtökin með söknuði en á móti kemur að ég vona störf mín þar nýtist vel á þingi. Ég get áfram beitt mér fyrir neytendamálum og það á stærri vettvangi.“

Nánar er rætt við Brynhildi í prentútgáfu Vikudags

throstur@vikudagur.is

Nýjast