Hinn 31. maí næstkomandi verða sveitarstjórnarkosningar. "Ég hvet alla, bæði Akureyringa og aðra landsmenn til þess kynna sér kosningamálin, hvað flokkarnir standa fyrir og kynnast fólkinu sem er í framboði. Ég tók þá ákvörðun fyrir nokkru síðan að hella mér út í stjórnmál enda hafa þau lengi verið mér hugleikin," skrifar Bjarki Ármann Oddsson, sem skipar þriðja sæti framboðslista Samfylkingarinnar á Aakureyri.
"Í dag virðist vera kúl og inni að hafa sem minnstan áhuga á stjórnmálum. Fólk nennir hreinlega ekki kynna sér stjórnmál og taka virkan þátt í þeim og lætur 2-3% landsmanna eða svokallaða aðgerðasinna alveg um það. Íslenskar kosningarannsóknir sína að rúmlega 40% fólks segist ekki geta nefnt einn sveitarstjórnarmann í sínu eigin sveitarfélagi!