Afurðaskýrslur nautgriparæktarinnar fyrir síðasta ár sýna að á hverju kúabúi landsins eru að jafnaði 39kýr. Fæstar eru kýrnar í SuðurÞingeyjarsýslu, flestar eru hins vegar í Eyjafirði, 48 kýr eru á meðalbúinu í Eyjafirði.
Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda segir að búin hafi verið stærst í Eyjafirði um árabil.
Aðstæður til að reka kúabú í Eyjafirði eru um margt ákjósanlegar, auk þess sem nálægðin við afurðastöðina á Akureyri hefur mjög mikið að segja.
Hann segir að kúabúum hafi fækkað mikið í Eyjafirði á undanförnum áratugum, rétt eins og annars staðar á landinu.
Í dag eru um 100 kúabú í Eyjafirði og þau hafa stækkað mikið.Mér sýnist að margir bændur séu að tæknivæðast, sem ber vott um bjartsýni.
Kúabúin á Íslandi voru um áramótin 668 og fækkaði þeim um þrettán á árinu. Framleiðsla á hverju kúabúi var að meðaltali 187.265 lítrar af mjólk og jókst um 4.036 lítra á árinu.
karleskil@vikudagur.is