Við munum vissulega skoða þetta mál en ég vil ekki láta hafa neitt eftir mér um þetta núna. Ég mun setja mig í samband við félögin og ræða þessi mál, segir Þórir Hákonarson framkvæmdastjóri KSÍ. Akureyri Vikublað greinir frá því að vísbendingar séu um að sumir leikmanna Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri hafi í leik gegn Dalvík/Reyni á dögunum veðjað á leik sem þeir sjálfir tóku þátt í 13. janúar sl.
Um ræðir leik í Kjarnafæðismótinu þar sem Þór lagði Dalvík/Reyni að velli, 7-0. Til skoðunar er hvort sumir leikmanna Þórs hafi veðjað á erlendri vefsíðu á eigin sigur og lagt aukalega undir ef þriggja marka sigur eða stærri næðist. Hermt er að með því hafi þeir sem mest lögðu undir grætt 100.000 til 150.000 á úrslitunum.