Krummafótur á Grenivík 25 ára

Leikskólinn Krummafótur á Grenivík fagnaði 25 ára afmæli nýverið. Hér bregða starfsmenn á leik af þv…
Leikskólinn Krummafótur á Grenivík fagnaði 25 ára afmæli nýverið. Hér bregða starfsmenn á leik af því tilefni. Mynd á vefsíðu Grýtubakkhrepps

Leikskólinn Krummafótur á Grenivík fagnaði 25 ára afmæli nýverið. Af því tilefni var opið hús í leikskólanum og var gestum og gangandi boðið upp á kaffi og afmælisköku.

Á sama tíma gafst gestum kostur á að skoða ljósmyndasýninguna MEÐ OKKAR AUGUM en börnin á Krummafæti höfðu farið í göngutúra um víkina með myndavél og tekið myndir af því sem vakti athygli þeirra. Einnig voru önnur listaverk eftir börnin til sýnis.

Veglegar gjafir

Krummafótur fékk veglega gjöf frá Sænesi og Kvenfélaginu Hlín í tilefni afmælisins. Sænes gaf einingakubba sem nýtast hvort tveggja í kennslu og í leik og Kvenfélagið gaf peningastyrk til kaupa á skáp undir kubbana.

Mjög góð mæting var í opna húsið, um 80 manns lögðu leið sína í leikskólann og fögnuðu áfanganum að því er fram kemur á vefsíðu Grýtubakkahrepps.

Nýjast