Kristján Vilhelmsson skattakóngur Norðurlands

Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson/mynd Karl Eskil
Kristján Vilhelmsson og Þorsteinn Már Baldvinsson/mynd Karl Eskil

Ríkisskattstjóri birti í dag álagningarseðla einstaklinga vegna opinberra gjalda. Barnabætur, vaxtabætur og fyrirframgreiddar vaxtabætur verða greiddar út 1. ágúst, auk annarra inneigna.

Álagningarskrá mun liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra frá deginum í dag til 8. ágúst.

Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja er skattakóngur á Norðurlandi, honum er gert að greiða samtals 153 milljónir króna í opinber gjöld. Hann er í öðru sæti á landslistanum. Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja er í áttunda sæti á landslistanum, honum er gert að greiða 85 milljónir króna í opinber gjöld.

Í 15. sæti landslistans er Kolbrún Ingólfsdóttir, henni er gert að greiða 67 milljónir króna. Kolbrún er eiginkona Kristjáns Vilhelmssonar.

Kristín Einarsdóttir á Akureyri er í 27. sæti listans, álagningin er samtals 57 milljónir króna.

Páll L. Sigurjónsson á Akureyri er í 30. sæti, gjöldin eru 55 milljónir króna.

Nýjast