Kristján Þór og Tryggvi Þór vilja umræðu um málefni Bakka fremst á dagskrá

Kristján Þór Júlíusson og Tryggvi Þór Herbertsson þingmenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi lögðu í dag fram dagskrártillögu á Alþingi um að fremst á dagskrá næsta þingfundar verði mál sem tengjast kísilveri í landi Bakka við Húsavík og uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

Samkvæmt dagskrá þingsins eru þessi mál nú þau 25. og 26. í röðinni.

Jafnframt óska þingmennirnir eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu fyrir lok þess þingfundar sem nú stendur yfir.

Nýjast