Kristín Halldórsdóttir verður mjólkurbússtjóri á Akureyri

Kristín Halldórsdóttir.
Kristín Halldórsdóttir.

Kristín Halldórsdóttir, gæðastjóri Mjólkursamsölunnar á Akureyri, hefur verið ráðin mjólkurbússtjóri félagsins þar frá 1. október. Hún tekur við af Sigurði  R. Friðjónsyni sem verður verkefnastjóri í vöruþróun félagsins í Reykjavík.  Friðjón G. Jónsson, sem ætlað var að tæki við starfi Sigurðar hefur óskað eftir breytingum af persónulegum ástæðum. Hann verður áfram verkstjóri í mjólkurbúinu.

Kristín Halldórsdóttir er mjólkurtæknifræðingur og hefur starfað fyrir mjólkuriðnaðinn frá árinu 1987, fyrst hjá Norðurmjólk en síðan hjá Mjólkursamsölunni. Hún hefur verið gæðastjóri Mjólkursamlagsins  á Akureyri frá 2000.

Undanfarin ár hefur staðið yfir endurnýjun á ýmsum þáttum starfseminnar á Akureyri, m.a. með fjárfestingum í nýjum mjólkurpökkunarbúnaði, nýju innvigtunarhúsi fyrir mjólkurbíla, sjálfvirknivæðingu í frátöku af framleiðslulínum og ýmsum fleiri þáttum starfseminnar. Stærstu skrefin verða stigin á næstu misserum þegar lokið verður algerri endurnýjun ostaframleiðslu á Akureyri. 

Fyrsti áfanginn er þegar komin í notkun, næsti verður gangsettur fyrir áramót og fyrir mitt næsta ár verður verður lokið síðasta og stærsta áfanga þessarar endurnýjunar þegar nýjar ostapressur og ostagerðatankar verða sett upp á Akureyri, segir í frétttilkynningu.

Nýjast