Mygla í húsnæði rannsóknardeildar SAk - Deildin flutt tímabundið í annað húsnæði meðan endurbætur fara fram
Ákveðið hefur verið að flytja alla starfsemi rannsóknardeildar Sjúkrahússins á Akureyri tímabundið í annað húsnæði á meðan ráðist er í viðamiklar endurbætur á núverandi húsnæði þar sem mygla hefur greinst þar.
Í vetur vaknaði grunur um myglu í húsnæði rannsóknardeildar SAk eftir að starfsfólk fór að finna fyrir óútskýrðum einkennum, á borð við þreytu og höfuðverk. Í fyrstu virtist vandinn afmarkaður, en nýjustu rannsóknir sýna að umfangið er mun meira en áður var talið – og að upptökin liggi líklega undir gólfum, frekar en í útveggjum líkt og áður var talið að því er fram kemur á vef SAk.
„Þetta er krefjandi staða og mikil áskorun – ekki síst fyrir það öfluga starfsfólk sem heldur uppi þessari mikilvægu starfsemi. Það skiptir sköpum að aðbúnaður þess sé tryggður og að starfsemin geti haldið áfram án truflana,“ segir Hildigunnur Svavarsdóttir, forstjóri SAk. „Rannsóknardeildin gegnir lykilhlutverki í greiningu og meðferð sjúklinga og er burðarás í faglegu starfi spítalans.“
Unnið er að því af fullum krafti að tryggja öruggar lausnir fyrir starfsfólk og starfsemi rannsóknardeildar. Framkvæmdir eru nú í undirbúningi og lagt er upp með að þær fari fram eins hratt og örugglega og mögulegt er.