Þverá í Eyjafjarðarsveit flæddi yfir bakka sína í gær og fór af þeim sökum vatn yfir malarkrúsir skammt frá jarðgrðarstöð Moltu ehf á Þveráreyrum. Ari Hilmarsson bóndi á Þverá segir að krapastífla hafi myndast í ánni með fyrrgreindum afleiðingum. Hann telur að lítil sem engin hætta sé á ferðum. Brugðist hafi verið við með því nota stórvirka vinnuvél til að forða hugsanlegu tjóni.
karleskil@vikudagur.is