Kostnaður við nýja virkjun 830 milljónir

Tölvugerð mynd  af virkjuninni
Tölvugerð mynd af virkjuninni

Bæjarráð Akureyrar samþykkti í síðustu viku að hefja viðræður við Fallorku um virkjun Glerár og tengdar framkvæmdir. Fallorka, sem er í eigu Norðurorku hefur undanfarin ár unnið að þeim möguleika að byggja vatnsaflsvirkjun.

Gert er ráð fyrir inntaksstíflu skammt frá neysluvatnslindum Norðurorku á Glerárdal, í rúmlega 300 metrum yfir sjávarmáli. Í skýrslu Verkfræðistofu Norðurlands og Eflu segir að um sé að ræða auðvelda og tæknilega einfalda framkvæmd. Reiknað sé með 5 – 6 m hárri steinsteyptri stíflu, með yfirfalli, botnrás og inntaksþró. Inntakslón yrði tæpur 1,0 ha og vatnsmiðlun hverfandi.

„Við áætlum að áfrframleiðalan verði um 22 GígaWatt stundir, sem er hátt í 20 % af raforkuþörf Akureyringa, ef verksmiðja Becromal er ekki tekin með. Kostnaðurinn er um 830 milljónir króna og ef allt gengur eftir, verður hægt að taka virkjunina í notkun í lok ársins 2015,“ segir Andri Teitsson framkvæmdastjóri Fallorku.

Ráðgert er að nota pípustæðið að mestu leyti undir göngustíg inn að inntaksstíflu og tengist stígakerfi bæjarins.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast