Kórfélagi með klarínett í annarri og leikgleði í hinni

Hólmdís Freyja á ferðlagi í Brighton  Myndir  aðsendar
Hólmdís Freyja á ferðlagi í Brighton Myndir aðsendar

Vísindafólkið okkar – Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir

„Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á vísindafólkinu okkar. Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir, aðjúnkt við Iðjuþjálfunardeild er vísindamanneskja júnímánaðar“

Hólmdís kemur frá austfirsku náttúruparadísinni Vopnafirði, þar sem hún fæddist árið 1979, en á líka sterkar rætur í Aðaldalnum þar sem móðurforeldrar hennar bjuggu. Hún ólst upp í nálægð við sjó, kletta og fjörur og undi sér vel í náttúrunni en hvort sem var inni eða úti var bók yfirleitt við höndina. „Þrátt fyrir að vera alin upp í sjávarþorpi þá var sveitin ekki langt undan og á hverju vori fór ég í sauðburð í Aðaldalinn og frá 11 ára aldri var ég í sveit hjá föðursystur minni og vann meðal annars við að sýna Minjasafnið á Bustarfelli í nokkur sumur.“

Í Framhaldsskólanum á Laugum kviknaði fyrst neistinn fyrir iðjuþjálfun – áfangastjóri skólans benti henni á grein um nýtt nám við Háskólann á Akureyri árið 1997. „Hann sagði að þetta væri eitthvað fyrir mig – og viti menn, hann sáði fræi,“ segir hún hlæjandi.

Leið hennar lá svo til Reykjavíkur þar sem hún kláraði stúdentspróf við Fjölbrautarskólann í Ármúla og fór svo eftir ársleyfi frá námi í iðjuþjálfun við HA. „Að námi loknu vann ég við iðjuþjálfun barna og unglinga, meðal annars í grunnskóla og á Æfingastöðinni í Reykjavík. Svo lauk ég meistaranámi í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands árið 2011 og tveimur árum seinna hóf ég störf við HA við afleysingar og þá var ekki aftur snúið,“ segir Hólmdís.

Hvernig kennum við það sem ekki er hægt kenna með töflukrít?

Í dag kennir Hólmdís bæði á grunn- og meistarastigi í iðjuþjálfunarfræði. Kennslan er sveigjanleg, þar sem fyrirlestrar fara fram á netinu og stúdentar koma einnig reglulega í staðlotur á Akureyri.

„Tækifærin liggja meðal annars í að nýta tæknina og allt sem hún hefur upp á að bjóða í þessu samhengi en það getur líka verið áskorun að skapa eflandi námssamfélag í gegnum netið. Loturnar á Akureyri eru alltaf skemmtilegar og gaman að hitta stúdenta í raunheimum og veita þeim tækifæri til að spreyta sig í mismunandi aðstæðum. Iðjuþjálfun reynir mikið á hið mannlega samspil og er það nauðsynlegur hluti af náminu að vinna náið með öðru fólki, taka tillit til ólíkra þarfa en um leið taka ábyrgð á eigin námi og starfi,“ útskýrir Hólmdís um reynslu sína af námsforminu.

Leikur sem lífsfærni og þátttaka sem réttindi

Frá útskrift árið 2004 hefur Hólmdís sinnt börnum í starfi og rannsóknum. Eitt af áhugaverðustu verkefnum hennar, samkvæmt henni sjálfri, var þátttaka í evrópska þverfaglega verkefninu LUDI – play for children with disabilities. Í verkefninu er megináherslan á að öll börn hafi tækifæri til sjálfsprottins leiks eða eins og Hólmdís lýsir því: „Það er mjög mikilvægt að við fáum frelsi til að leika okkur í dagsins önn og gegnum leik öðlumst við færni til að takast á við kröfur og áskoranir lífsins.“

Aðspurð að hverju ætti að huga í framtíðarrannsóknum á þessu sviði segir hún: „Ég vil sjá frekari rannsóknir á leik barna og þátttöku þeirra í daglegri iðju á Íslandi. Einnig hef ég mikinn áhuga á að skoða þátttöku jaðarsettra hópa í samfélaginu því þegar við eflum þátttöku allra þá aukum við farsæld til lengri tíma litið – það hefur margsannað sig.“

Rödd, rútína og rómantík – líka við skraflborðið

Lestur hefur fylgt Hólmdísi í gegnum lífið og hún segir að í dag njóti hún þess að vera heima í rólegheitunum með góða bók í eyrunum á meðan hún skellir í köku eða útbýr ljúffengan kvöldverð. „Ég elska líka að ná góðum stundum í sveitinni og fallega firðinum fyrir austan til að slaka á og njóta. Spila og hlæja með fjölskyldunni og ferðast hvort sem er hér innanlands eða erlendis,“ segir Hólmdís en það sem færri vita er að bak við aðjúnktstitilinn býr líka tónlistarkona af bestu sort.

Ekki nóg með að hún hafi sungið í tíu ár með poppkórnum Vocal Project, þar sem hápunkti var náð með þátttöku í kórakeppni í Kraká, þá lærði hún í tíu ár á klarínett og hefur meira að segja „svæft“ kennara í tíma! „Látum liggja á milli hluta hvort það var vegna leiðinda eða fegurðar tónlistarinnar,“ segir hún kímin.

Við mælum með að fólk skelli sér í iðjuþjálfun hjá Hólmdísi eða á tónleika hjá poppkórnum en vörum við að skora á hana í skrafl, „þar sýni ég enga miskunn enda forfallinn skraflari og hef náð 203 stigum í einni lögn!“ segir Hólmdís að lokum, stolt af afrekinu.

Hólmdís Freyja á ráðstefnunni OT-Europe í Krakow 2024

Á æfingu með Vocal Project – Poppkór Íslands

Skálað í Kaffi á Djúpalandssandi

Hólmdís Freyja að njóta náttúrunnar við Hjálparfoss

 

Nýjast