Kór suðkindanna í Bergi á Dalvík

Skúlptúrar Aðalheiðar Eysteinsdóttur
Skúlptúrar Aðalheiðar Eysteinsdóttur

Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýningu í menningarhúsinu Bergi á Dalvík á laugardaginn.  Sýningin er hluti af verkefninu " Réttardagur 50 sýninga röð" og er númer 42 í röðinni. Viðfangsefni sýningarinnar er að lýsa þeim töfrum líka degi þegar fé safnast af fjalli ár hvert og sækir Aðalheiður innblástur úr sínu nánasta umhverfi og í minningar frá æsku sinni á Siglufirði. Uppsetning sýningarinnar verður í kórstíl þar sem ljúfir tónar frá íslensku sauðkindinni munu hljóma.
Undanfarin fjögur og hálft ár hefur Aðalheiður sett upp sýningar erlendis og hér heima sem allar fjalla á einn eða annan hátt um íslensku sauðkindina og þá menningu sem af henni skapast.  Þannig hefur hún fjallað um sauðburð, slátrun, kindur á fjalli, innmat, Þorrablót, réttardaginn, réttarkaffi og fl.  Yfirleitt standast sýningarnar dagatal sauðkindarinnar svo sem sauðburður á vorin, og eru gjarnan unnar í samstarfi við fjölda listamanna og annað skapandi fólk. 
Sýningin í Bergi ber yfirskriftina " Á Þorra " og er hún styrkt af Menningarráði Eyþings.  Allir velkomnir og léttar veitingar í boði.

Nýjast