Konur lesa meira en karlar

Gestir Amtsbókasafnsins á Akureyri voru 113.219 á síðasta ári, sem er 4% fækkun miðað við árið á undan.Útlán voru samtals 201.327 eintök, sem er 7% samdráttur, þar af voru bækur samtals 144.458. Þessar tölur eru í samræmi við sambærilegar tölur frá öðrum almenningsbókasöfnum bæði hérlendis og erlendis.

Samkvæmt uppgjöri safnsins voru konur 63 % lánþega, eða 7.342 á móti 4.396 körlum.

Karlarnir virðast hins vegar taka út á kort kvenna, því 80 % útlána var á kort kvenna.

Ýmsar gagnmerkar upplýsingar er að finna í ársuppgjöri safnsins:

• Flest útlán eiga sér stað milli 14:00 og 17:59 eða 55%

• Fjórir lánþegar eru fæddir á árunum 1900-1909

• Flestir lánþegar eru fæddir á árunum 1970-1999 eða 6.696 (56%)

• Flest útlán eru til þeirra sem eru fæddir 1960-1979 eða 89.303 (45%)

• 6.040 bækur voru afskráðar, 1.702 tímaritshefti, 805 geisladiskar og 456 myndbönd

• Flest ný eintök komu í janúar eða 770 og í október eða 611 (samtals 28%)

 

karleskil@vikduagur.is

Nýjast