Kona forseti í fyrsta skipti

Rannveig Björnsdóttir mynd Karl Eskil
Rannveig Björnsdóttir mynd Karl Eskil

Rótarýklúbbur Akureyrar á sér nokkuð langa og merkilega sögu. Forsetar klúbbsins hafa til þessa verið karlar, en í síðustu viku var Rannveig Björnsdóttir kjörin formaður. Hún er fyrsta konan sem sest í forsetastól. Auk Rannveigar eru tvær aðrar konur í stjórn klúbbsins.

„Ég var á sínum tíma fengin til að flytja erindi á fundi klúbbsins og í kjölfarið var mér boðið að ganga í hann, sem ég og þáði. Þetta er notalegur og fræðandi félagsskapur  og til að gera langa sögu stutta virðist ég falla vel inn í hópinn. Reyndar svo vel að ég kem til með að gegna embætti forseta næsta starfsárið og það traust er mér mikils virði,“ segir Rannveig. Hún segir líkja megi Rótarý við símenntun.

 „Vigdís Finnbogadóttir forseti nefndi þetta til dæmis einhvern tíma í viðtali, hún sagðist alltaf vera að fræðast með því að starfa í hreyfingunni. Svo held ég að umburðarlyndi mitt og skilningur hafi aukist með því að taka virkan þátt í starfsemi klúbbsins og hreyfingarinnar og það er mér mikils virði.“

 karleskil@vikudagur.is

 

Nánar er rætt við Rannveigu í prentútgáfu Vikudags

Nýjast