Unnið hefur verið að því að undirbúa fótboltavöll íþróttafélagsins Magna fyrir leiktíðina í sumar. Fyrsti heimaleikur Magna verður næstkomandi laugardag og spila þeir þá á móti ÍH í þriðju deild karla. Að sögn Þorsteins Þormóðssonar formanns Magna var völlurinn ekki eins slæmur og þeir bjuggust við miðað við ófremdarástandið á gróðri á norðurlandi eftir veturinn en eitthvað verður þó unnið áfram við hann í vikunni og eftir helgi. Næstu tvö kvöld á til að mynda að laga til við völlinn og mála varamannaskýlin og allir sem áhuga hafa hvattir til að koma og hjálpa til, segir á heimasíðu Grýtubakahrepps