Kjúklingur og döðlustangir

Bryndís Valgarðsdóttir skólastjóri í Hlíðarskóla sér um matarkrók vikunnar.

 

„Ég ætla að byrja á að bjóða ykkur

upp á afskaplega skemmtilegan kjúklingarétt

sem er auðvelt að leyfa börnunum

að hjálpa til við að búa til. Þessi

skammtur passar fyrir ca. 6 manns.“

 

Ljúfur kjúklingur

12 kjúklingalæri

2 msk. ólívuolía

750 g bragðmiklar pylsur s.s. chorizo

(má líka nota venjulegar) skornar í

hæfilega munnbita

1 kg kartöflur, skornar í hæfilega

munnbita

2 rauðlaukar, skornir frekar gróft

2 tsk. Oregano, þurrkað

Börkur af einni appelsínu

 

Setjið kjúklingaleggina í eldfast mót

(tvö ef þarf) veltið þeim upp úr olíunni,

bætið kartöflunum og pylsunum

saman við ásamt lauknum. Kryddið

með oregano og rífið svo börkinn af

appelsínunni yfir.

Bakað í ca. 60 mín. við 200° hita og

ausið reglulega yfir með soðinu. Berið

fram með fersku salati og t.d. nanbrauði

eða góðu grófu brauði.

Fiskur er eitthvað sem við mættum

gjarnan borða meira af og hér er uppskrift

af fiskrétti sem mér finnst mjög

góður og er gjarnan kallaður kjúklingafiskur

þar sem hann minnir dálítið

á kjúklingabringur.

 

Kjúklingafiskur

Ýsuflak

Sítrónusafi

Salt, pipar, karrý

¼ l rjómi

Hveiti

Soyjasósa

Olía/smjör

 

Ýsan skorin í bita, sítrónusafi kreistur

yfir og látin bíða ca. 30 mín.

Hveiti kryddað eftir smekk með pipar,

salti og karrý og fiskinum velt upp

úr blöndunni. Steikt í olíu eða smjöri

og sett í eldfast mót. Smá vatn er sett á

pönnuna, soðið upp, soyjasósa og rjómi

sett samanvið og þetta hitað vel saman.

Þessu er svo hellt yfir fiskinn, rifinn

ostur settur yfir og bakað í ca. 15 mín.

við 200°. Borið fram með grófum

grjónum og litríku fersku salati.

Síðan er alltaf gott að fá eitthvað sætt í

lok máltíðar og hér er uppskrift af

munngæti sem mér finnst afar gott.

 

Döðlustangir

120 gr brætt smjör (olía)

260 gr. púðursykur (hrásykur)

6 egg

170 g hveiti (fínt spelt)

½ tsk. lyftiduft (vínsteinslyftiduft)

460 g saxaðar döðlur

230 g saxaðar hnetur

 

Smjör, sykur og egg þeytt vel saman

og hinu blandað samanvið. Bakað við

175°hita í ofnskúffu, kælt og bráðnu

súkkulaði (gjarnan 56% súkkulaði)

smurt vel yfir. Skorið í fingurlanagar

lengjur.

„Ég skora á Styrmi Jörundsson

matráð í Hlíðarskóla að koma með

uppskriftir í næsta blað.“

Nýjast