Erla Sigríður Ragnarsdóttir skrifar:
Þá er komið að því. Á laugardaginn er hátíðisdagur í hugum og hjörtum Sjálfstæðismanna hér á Norðurlandi því þá gefst okkur tækifæri til að leggja lóð okkar á vogarskálarnar og hafa áhrif á framgöngu Sjálfstæðisflokksins í kosningum til Alþingis þann 24. apríl næstkomandi. Með því að tefla fram fjölbreyttum og sigurstranglegum lista fyrir Norðausturkjördæmi aukast líkur á því að við Sjálfstæðismenn komumst að ríkisstjórnarborðinu að kosningum loknum. Það er því til mikils að vinna.
Úrslit prófkjörsins skipta miklu máli fyrir Sjálfstæðismenn um land allt. Næstu fjögur ár munu í grundvallaratriðum snúast um að finna og gera við hjól atvinnulífsins. Við þurfum öfluga ríkisstjórn sem heldur styrkri hendi um hagstjórnina, sem blæs til sóknar og skapar ný og fjölbreytt tækifæri í íslensku samfélagi. Þau tækifæri fást aðeins með atvinnu, frelsi og fjölbreytileika, þar sem einstaklingurinn hefur tækifæri til að búa í sátt og samlyndi við sitt nærumhverfi. Þar sem einstaklingurinn hefur tækifæri til að nýta land sitt og auðlindirnar, af þeirri þekkingu og virðingu sem í brjósti hans býr. Þetta kunna Norðlendingar og þetta vilja þeir fá að gera í friði. Ekki í umhverfi boða og banna, þar sem allar hugmyndir til handa betri lífskjörum eru slegnar út af borðinu. Ekki með ofurskattheimtu með nýjum álögum í hverri viku. Ekki með leyndri ríkisvæðingu í nafni hinnar svokölluðu velferðarstjórnar.
Ég vil hvetja ykkur öll til að taka þátt og kjósa sterkan lista til sigurs í vor. Því með því að láta í herlúðrunum óma munu boðin berast um land allt og þannig slá upphafstaktinn fyrir komandi kosningabaráttu. Ég býð mig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi því ég vil leggja hönd á plóg í þessari baráttu sem framundan er. Mig langar til að leggja fram sýn mína og krafta, þekkingu og reynslu til þess að búa til kraftmikið samfélag sem þorir að axla ábyrgð og taka af skarið. Fyrir ykkur vil ég vinna. Við getum það saman!
Erla Sigríður Ragnarsdóttir býður sig fram í 2.- 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi