Kjörsókn á Akureyri 44.82 % klukkan 16:00

Klukkan 16:00 höfðu 6.008 kosið á Akureyri, sem þýðir að kjörsóknin er 44,82%. Á sama tíma í síðustu alþingiskosningum var kjörsóknin 40.95 %.

Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn hefur framkvæmd kosninganna gengið vel . Á Akureyri er kosið í Verkmenntaskólanum.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast