Kjörsókn er nokkruru betri en í síðustu alþingiskosningum. Klukkan 14:00 höfðu 3.853 kosið á Akureyri , sem er 28,75 % kjörsókn. Í síðustu kosningum var kjörsóknin 25,30 %á sama tíma , þannig að heldur fleiri hlutfallslega hafa kosið nú, segir Helga Eymundsdóttir formaður kjörstjórnar Akureyrar.
Á hádegi höfðu 20 kosið í Grímsey og 37 í Hrísey.