Kepptu í Rússlandi

Íslenski hópurinn.
Íslenski hópurinn.

Átján strákar á aldrinum 12-13 ára kepptu á Arctic Cup í íshokkí sem fram fór í Sankti Pétursborg í Rússlandi sl. helgi. Keppt var í tveimur flokkum en íslensku strákarnir komu úr öllum þremur skautafélögum landsins, þar af átta frá Skautafélagi Akureyrar (SA).

Íslenska liðið keppti m.a. við heimamenn Rússa og Kanada og var Sveinn Verneri Sveinsson frá SA valinn maður leiksins á móti Kanada. Einnig voru þeir Egill Birgisson, Einar Kristján Grant, Guðmundur Orri Knútsen, Halldór Ingi Skúlason, Heiðar Örn Kristveigarsson, Kristján Árnason og Sigurður Freyr Þorsteinsson frá SA í hópnum. Strákarnir þóttu standa sig vel á mótinu gegn sterkum andstæðingum.

Nýjast