Ég hef svo sem lítið hugsað um Útsvarið undanfarna daga, krafturinn hefur farið í að aðstoða bændur í Mývatnssveit. En, jú jú, auðvitað er ég spenntur og hlakka til að keppa fyrir bæinn minn, segir Sigurður Erlingsson sem valinn hefur verið í lið Akureyrar í spurningaþættinum Útsvari á RÚV. Birgir Guðmundsson sem var í liðinu í fyrra verður ekki með í ár, en séra Hildur Eir Bolladóttir og Hjálmar Stefán Brynjólfsson verða áfram í liðinu.
Sigurður hefur undanfarin ár veri símavinur Akureyrarliðsins, en Erlingur Sigurðarson, faðir Sigurðar, var um árabil í liði Akureyrar. Vegna hans þekki ég nokkuð vel til þessara sjónvarpsþátta og spurningaþátta yfirleitt, ég stefni að því að hafa gaman af þessu öllu saman. NÁNAR ER RÆTT VIÐ SIGURÐ Í PRENTÚTGÁFU VIKUDAGS SEM KEMUR ÚT Á MORGUN
karleskil@vikudagur.is