Kennarar þurfa frelsi til að tjá sig

„Ég hef lagt krafta mína í boðunarstarf hjá Hvítasunnukirkjunni undanfarið og helgað mig því starfi. Þar er ég bæði að prédika og sjá um kennslu. Svo hef ég einnig verið að ferðast um heiminn,“ segir Snorri Óskarsson, jafnan kenndur við trúarsöfnuðinn Betel. Snorri komst í fréttirnar sl. vor er honum var sagt upp störfum sem kennari í Brekkuskóla á Akureyri vegna umdeildra bloggskrifa um samkynhneigð.

Snorri hafði þá starfað sem kennari við Brekkuskóla frá árinu 2001 en hann hóf kennaraferilinn árið 1973. Blaðamaður Vikudags heimsótti Snorra.

„Kennarasamband Íslands fór fram á við Akureyrarbæ að borga mér bætur vegna þessa máls og það þýðir auðvitað að þau hjá KÍ eru ekki sátt við uppsögn af þessu tagi. Þau bentu á að þarna hefði ekkert brot á lögum né reglum kjarasamnings átt sér stað. Þannig að þessi uppsögn fær ekki staðist. Ég bíð eftir niðurstöðu frá innanríkisráðuneytinu en mér var gefinn kostur á að kæra uppsögnina þangað, sem ég og gerði. Niðurstaðan hjá ráðuneytinu mun liggja fyrir í vor. Fari málið svo að ég fái ekki bætur kemur vel til greina að kæra Akureyrarbæ,“ segir Snorri.

Fordæmisgildi

„Ég efast ekki um að málið mun hafa fordæmisgildi. Ef ég ákveð að gera ekkert í þessu er ég búinn að skapa fordæmi. Þá hefur Akureyrarbær sýnt fram á það að hægt sé að segja upp starfsfólki vegna skoðana sem fellur bænum ekki í geð. Ef þetta verður viðurkennt er heil atvinnustétt komin í uppnám og búin að missa sín réttindi. Það skiptir verulegu máli fyrir kennarastéttina í landinu að fá það á hreint hvort yfirvöld megi segja upp starfsfólki vegna bloggskrifa og almennra skoðana.“

„Sem kennari ertu að umgangast börn frá mismunandi heimilum og þaðan koma ólíkar skoðanir. Þegar börnin komast á unglingsár fara þau að spyrja spurninga. En það er ekkert endilega verið að spyrja um hvað sé rétt og rangt, heldur um álit á hinum ýmsu málefnum sem eru í gangi í samfélaginu á hverjum tíma. Ef kennari hefur ekki frelsi til að svara og leiða börnin í umræðunni án þess að eiga í hættu á að vera rekinn að þá er hann kominn í slæma stöðu," segir Snorri.

throstur@vikudagur.is

Nánar er rætt við Snorra í nýjustu prentútgáfu Vikudags.

Nýjast