KEA úthlutar styrkjum

Styrkþegarnir ásamt framkvæmdastjóra KEA
Styrkþegarnir ásamt framkvæmdastjóra KEA

Framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jóhannsson, afhenti síðdegis í dag  styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Þetta er í 79. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum. Auglýst var eftir umsóknum og barst 141 umsókn. Veittir voru 36 styrkir, samtals að fjárhæð 6 milljónir króna.

Almennir styrkir, styrkupphæð kr. 150.000,-.

Aflið samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi, til reksturs félagsins.

Samkór Svarfdæla, til að gera dagskrá um ævi Jóhanns Svarfdælings.

Leikfélag Húsavíkur, til að varðveita og skrásetja sögu leikfélagsins.

Geðlist, til að kaupa verkfæri til listsköpunar.

Útgerðarminjasafnið á Grenivík, til að ganga frá bílastæðum.

Hörður Geirsson, til að taka myndir á gler- og álplötur og gefa út ljósmyndabók.

SÍMEY/Fjölmennt, til að halda hátíðina List án landamæra.

Leikfélag Hörgdæla, til að skrifa leikrit um Djáknann frá Myrká.

Slökkvilið Siglufjarðar, til að gera upp fyrsta slökkvibíl Siglufjarðar

Listvinafélag Akureyrarkirkju, til að kaupa flygil.

Kór Glerárkirkju, til tónleikahalds.

Ungir afreksmenn, styrkupphæð kr. 125.000,-.

Brynjar Leó Kristinsson, skíðaganga.

Gunnar Björn Jónsson, söngur.

Ævar Ingi Jóhannesson, knattspyrna.

Arnar Geir Ísaksson, skíði.

Ævarr Freyr Birgisson, golf.

Sveinborg Katla Daníelsdóttir, taekwondo.

Gísli Björgvin Gíslason, leiklist.

Grétar Skúli Gunnarsson, kraftlyftingar.

Ómar Smári Skúlason, íshokkí.

Haukur Fannar Möller, taekwondo.

Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, golf.

Agnes Eva Þórarinsdóttir, efnafræði. 

Benedikt Rúnar Valtýsson, blak.

Sigrún Mary McCormick, fiðluleikur.

Íþróttastyrkir, styrkupphæð kr. 200.000,-.

Karatefélag Akureyrar, til að kaupa dýnur. 

Íþróttafélagið Völsungur – Skíðagöngudeild, til að standa fyrir 60 km skíðagöngu.

Ungmenna- og Íþróttasamband Fjallabyggðar, til að halda vetrarleika.

Hjólabrettafélag Akureyrar, til að opna innanhúss-hjólabrettaaðstöðu.

Ungmennafélagið Smárinn, til að kaupa búnað.

Fimleikadeild UMFS, til áhaldakaupa.

Golfklúbbur Akureyrar, til uppbyggingar á æfingasvæði klúbbsins.

Þátttökuverkefni:

Iðnaðarsafnið á Akureyri, kr. 250 þúsund, til að setja upp upplýsingaspjöld.

Síldarminjasafn Íslands, kr. 250 þúsund, til að endurgera verkstæðishús gamla Slippsins á Siglufirði.

Jakob Björnsson fh. óstofnaðs útgáfufélags, kr. 250 þúsund, til að rita og gefa út Sögu starfsmannafélags verksmiðja Sambandsins.

Gamli bærinn Öngulsstöðum, kr. 500 þúsund, til uppbyggingar á gamla bænum á Öngulsstöðum.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast