Kaup á vatnsrenninraut stöðvuð

Núverandi rennibraut
Núverandi rennibraut

Kærunefnd útboðsmála hefur stöðvað um stundarsakir kaup Akureyrarbæjar á vatnsrennibraut og uppgöngustigahúsi við Sundlaug Akureyrar. Mannvirkið kostar rétt um 100 milljónir króna.

„Af gögnum málsins verður ekki ráðið að framangreind innkaup hafi farið fram í samræmi við þá innkaupaferla og þær reglur sem lög um opinber innkaup áskilja samkvæmt framangreindu. Hafa því verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup,“ segir meðal annars í niðurstöðu kærunefndarinnar.

Lesa ákvörðun kærunefndarinnar

Nýjast