Kaldavatnslögn gaf sig í Drekagili

Loftmynd af Drekagili
Loftmynd af Drekagili

Síðdegis gaf sig kaldavatnslögn í Drekagili á Akureyri og eru öll hús við götuna vatnslaus nema eitt hús.

Óvíst er hvenær viðgerð lýkur, samkvæmt tilkynningu frá Norðurorku

„Vegfarendur eru beðnir að gæta að því að nauðsynlegt var að loka austasta hluta Drekagils fyrir umferð.  Bifreiðar sem eru á bílastæðum við bokkirnar nr. 21 og 28 komast af þeim eftir göngustíg út á Hlíðarbraut en ekki hægt að leyfa frekari umferð um þann stíg.

Íbúar eru beðnir að sýna sérstaka aðgát í meðferð heita vatnsins þar sem ekki er kostur á köldu vatni til uppblöndunnar.  Einnig að aðgæta að kaldavatnskranar séu ekki opnir.  Slíkt getur skapað mikla hættu ef enginn er heima þegar vatni er hleypt á,“ segir í tilkynningunni.

Nýjast