Creditinfo birti í vikunni árlegan lista sinn yfir framúrskarandi fyrirtæki. Þrjú fyrirtæki tóku við þetta tilefni við sérstökum viðurkenningum úr hendi Katrínar Júlíusdóttur, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta voru lyfjasölufyrirtækið Medis í Hafnarfirði fyrir að verma efsta sætið á listanum í ár. Kælismiðjan Frost á Akureyri hlaut viðurkenningu fyrir mestu hækkun á listanum undanfarin þrjú ár, en fyrirtækið situr nú í 58. sæti listans. Byggingaverktakinn Alefli úr Mosfellsbæ hlaut síðan verðlaun fyrir að vera efst fyrirtækja í bygginga- og mannvirkjagerð.
Eins og fram kom í viðtali við Gunnar Larsen framkvæmdastjóra Frosts í Vikudegi fyrir skömmu, er verkefnastaða fyrirtækisins í upphafi ársins sérlega góð.