Yngri flokkar KA í blaki gerðu góða ferð suður yfir heiðar sl. helgi þegar bikarmót BLÍ fór fram í Reykjavík. Í þriðja flokki pilta varð KA bikarmeistari eftir að hafa unnið HK, 3-1, og Aftureldingu, 3-0. Þessir sömu strákar spiluðu einnig í öðrum flokki og tóku bikarinn í þeim flokki. Frábær árangur en strákarnir töpuðu aðeins einni hrinu í öllum sínum leikjum. Í öðrum flokki stúlkna hlaut KA silfurverðlaun eftir að hafa leikið til úrslita gegn Aftureldingu, sem vann leikinn 2-0. Í þriðja flokki stúlkna hafnaði KA í fimmta sæti.